Stórkostlegt afrek

Algjörlega magnað að sjá íslenska landsliðið standa á verðlaunapalli og taka við verðlaunum fyrir þessa frábæru frammistöðu á leikunum. Bara gæsahúð og tár og allur pakkinn.

Nú dugir ekkert minna en taka veglega á móti strákunum þegar þeir koma aftur á Íslandið góða. Sem er jú ekki lítið land heldur "stórasta" land í heimi!

Það væri flott ef hægt yrði að taka á móti þeim niðrí miðbæ, t.d. á Lækjargötunni eða fyrir neðan Arnarhól. Mér líst miklu betur á þá staðsetningu heldur en t.d. Smáralind.

En það er ekki annað hægt en að þakka strákunum fyrir þessa frábæru frammistöðu og bara alla stemminguna og gleðina sem fylgt hefur árangri þeirra á ÓL. 

 


mbl.is Íslendingar taka við silfrinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ABBA æði

Ef miðað er við hvað ABBA myndin MAMMA MIA hefur fengið mikla aðsókn og hvað bæði tónlistin úr myndinni og gamlir ABBA diskar seljast vel í búðinni sem ég vinn í þá held ég að það sé óhætt að segja að það sé algjört ABBA æði í gangi. Sem er auðvitað bara æðislegt enda myndin stórskemmtileg og gömlu ABBA lögin orðin sígild og standa fyrir sínu.

Um daginn heyrði ég alveg ótrúlega góða hugmynd sem ég man ekki eftir að hafa heyrt áður. Hún er sú að leikhúsin hérna taka sig til og sýni söngleikinn MAMMA MIA en hann er búinn að ganga fyrir fullu húsi t.d. í London og New York og víðar í mörg ár.

Fyrir kannski 10-15 árum var endalaust verið að sýna söngleiki í leikhúsunum hér. Hver man ekki eftir Hárinu sem Baltasar Kormákur leikstýrði sumarið 1994 minnir mig? Eða Jesus Christ Superstar, Stone Free og Kysstu mig Kata í Borgarleikhúsinu? Sló þetta ekki í gegn á sínum tíma? Ja mig minnir það allavega. Skemmtilegir söngleikir virðast höfða til margra og MAMMA MIA ætti að geta slegið í gegn á sviði hér eins og annars staðar er ég viss um.


Nýjustu uppáhaldslögin mín

Var að uppgötva nýtt lag með sögnkonunni Gabriella Climi. Held bara að það sé nýjasta uppáhaldslagið mitt.

 Undanfarið er ég líka búin að hlusta mikið á Duffy. Ótrúlega góð söngkona og flott lög. Mercy er örugglega þekktasta lagið með henni. Allavega búið að spila það mikið á útvarpsstöðvunum í vor og sumar. Mjög flott lag.

 Uppáhaldið mitt með henni er samt Warwick Avenue:

Í þessu lagi Rockferry finnst mér röddin hennar minna mig á röddina hennar Lay Low:

 En talandi um Lay Low - þá var ég að heyra að Borgarleikhúsið ætlar í vetur að sýna leikritið Ökutíma sem er einmitt með lögunum hennar Lay Low og var sýnt á Akureyri sl. vetur. Mun pottþétt skella mér á það.

Hef ekki farið í leikhús í nokkur ár. Bara af því að það hefur ekkert höfðað til mín af því sem sýnt hefur verið. Held að síðasta skiptið sem ég fór í leikhús hafi verið á Edith Piaf í Þjóðleikhúsinu. Það var algjörlega frábær sýning og ógleymanleg. Í hléinu gerðist það nefnilega að brunakerfið í leikhúsinu fór í gang vegna smávægilegs elds sem kom upp og ekki var hægt að byrja sýninguna á réttum tíma eftir hlé. Leikararnir með Brynhildi Guðjónsdóttur í fararbroddi skelltu sér þá bara út á tröppur fyrir framan leikhúsið og héldu smá útitónleika og það var æði. Geggjuð stemming og bara gaman!

Svo hef ég líka heyrt að það eigi að sýna söngleik í Íslensku óperunni með lögum Janis Joplin. Það er líka eitthvað sem mig langar til að sjá. 


Kvabb og kjúklingasalat

Horfði á fréttirnar í kvöld og komst að því að allt er að fara til fjandans. Fyrsta fréttin á Stöð 2 sagði að verðbólga á Íslandi hefur ekki verið meiri í 18 ár og hækkun höfuðstóls á 20 milljóna króna húsnæðisláni samsvarar árslaunum leikskólakennara. Ekki tók betra við í næstu frétt. Verra ef eitthvað er! Samt heyrði ég bara restina af fréttinni. Þar sagði frá afleiðingum loftslagsbreyfinga á náttúrufar á Íslandi. Mér skilst að Vatnajökull muni heyra sögunni til eftir 100 ár og eldgos verði fleiri. Eins gott að ég náði ekki allri fréttinni.  Það hefði alveg farið með mig!

Stöð 1 var í svipuðum gír. Þar var talað um aukið atvinnuleysi og spádóma um að það fari vaxandi. Mér finnst eins og að alla mína æsku hafi fréttatímar sjónvarpsstöðvanna bara snúist um fréttir um minnkandi þorkveiði, loðnuveiði, kvótaeitthvað blabla...., niðurskurð í heilbrigðiskerfinu eða fréttir um atvinnuleysi. Svo kom reyndar tímabil þar sem fermingarbörn í jakkafötum voru fastagestir í Kastljósinu til að segja manni hvaða hlutabréf maður ætti að kaupa. Ég keypti engin sem betur fer! Væri þokkalega á þvílíkum bömmer núna - eða kannski moldrík. Erfitt að segja.

Kannski maður skelli bara inn uppskrift að viðfræga kjúklingasalatinu mínu. Miðað við hörmungar fréttatíma kvöldsins ætti maður kannski að vera með uppskrift af hafragraut með hundasúrum eða einhverju álíka ódýru kreppufæði!

 

5 kjúklingabringur

Kjúklingakrydd

Ca. 5 msk Hunts BBQ Honey Mustard sósa

1 Iceberghaus

1 rauð paprika

1 gul paprika

1 lítill rauðlaukur

1/2 Agúrka

Kirsuberjatómatar

1 mango 

1 poki ristaðar furuhnetur

1/2 krukka af fetaosti í kryddolíu

Bringurnar skornar í bita og steiktar á pönnu. Kryddaðar og þegar þær eru orðnar þokkalega steiktar þá er BBQ sósunni bætt út í og látið malla.

Kjúklingurinn látinn kólna í ísskáp á meðan grænmetið er skorið.

Best er að setja grænmetið fyrst út í, svo kjúklinginn, furuhneturnar, mangóið og enda á fetaostinum.

Borðað með snittubrauði og einhverri kaldri sósu. Very good!

 

 


Nammi gott

Eldaði ótrúlega góðar kjúklingabringur í kvöld og verð bara að deila með ykkur:

Hrærði saman krukku af grænu pestói, einni dós mascarpone osti og smá balsamikediki og smurði því yfir kjúklingabringur. Setti svo sneið af góðu beikoni (ekki þessum venjulegu ógeðisbeikonsneiðum heldur flottum breiðum beikonsneiðum með eiginlega engri sjánlegri fitu) ofan á bringurnar. Stráði smá púðursykri yfir beikonið.

Setti í eldfast mót og hitaði í ofni við 175 gráður í ca. 30 mínútur.

Ótrúlega gott alveg, borðað með góðu salati og brauði. Namm namm. 


Ný þjónusta hjá mbl.is?

Þetta er nú ósköp fallega gert hjá starfsmanni sýslumannsembættisins í Reykjavík að auglýsa eftir eigandanum af barnasandala númer 23.

En miðað við hvað fólk er gjarnt á að gleyma og týna hlutum í búðinni sem ég vinn í, þá sé ég ekki fram á að Mbl.is muni hafa mikið annað að gera í framtíðinni ef allir starfsmenn verslana, skóla og þjónustufyrirtækja færu að senda inn svona tilkynningar á mbl.is.

Stundum kemur það fyrir að fólk gleymir heilu innkaupapokunum í búðinni - en yfirleitt er það nú ekki lengi að uppgötva það. Undarlegra er með alla bíllyklana sem finnast og enginn spyr nokkurn tímann um. Yfirleitt lyklar með fjarstýringu sem eru rándýrir en fólk virðist ekki nenna að leita af þeim sem mér finnst skrýtið því einhvern veginn þarf fólk nú að komast heim á bílnum.

Sem dæmi um óskilamuni sem ég man eftir að hafa fundið í gegnum árin eru koddi úr barnavagni, matreiðslubækur (fólk kemur með bækurnar með sér og kaupir hráefnið í uppskriftinni), kreditkort, pokum úr apótekinu (mjög hentugt ef það eru lyf því þau eru yfirleitt merkt með nafni og heimilisfangi viðkomandi og því auðvelt að hafa upp á eigandanum), heyrnatæki, uppkast að erfðaskrá, hjólahjálmar, bangsar, gleraugu, veski, skartgripir, snyrtivörur, leikfimisdót, klarinett í tösku og nótnahefti með (við hringdum í tónlistarskólann í nágrenninu og létum vita og nokkrum dögum seinna kom faðir nokkur og sótti klarinettið sem dóttir hans hafði týnt - voru víst mikið búin að leita og spyrjast fyrir um það), minnisbækur, hárspennur, vettlingar, hanskar, húfur og bara name it. Flesta af þessum hlutum er aldrei spurt um og daga bara uppi þar til þeim er hent ef enginn hefur spurt um þá eftir að þeir hafa legið í marga mánuði.

Þannig að það væri mjög sniðugt ef fólk myndi merkja hluti - sérstaklega krakkadót eins og vettlinga, húfur, leikfimistöskur, hjálma og svoleiðis hluti. Geri mér grein fyrir því að fólk mun seint merkja lesgleraugu eða skartgripi með nafni og síma en það er leiðinlegt að horfa upp á öll verðmætin sem felast í þessum hlutum fara til spillist af því það er ekki hægt að hafa upp á eigandanum.

 


mbl.is Hver á skóinn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn eitt ísbjarnarbloggið - again!

Það virðist þurfa öflugan jarðskjálfta eða ísbjörn í íslenskri sveit til að ég drattist til að blogga.

Er búin að vera á leiðinni að blogga um hina stórgóðu mynd Sex and the city í nokkra daga en ekki komið mér að því enn. Svo þegar berast að því fréttir að annar ísbjörn hafi stígið á land þá verð ég bara að tjá mig um það mál og geymi þær stöllur frá New York til betri tíma.

En alllavega, þó að árið sé bara sirka hálfnað þá get ég svo svarið það að kjánahrollur ársins er kominn fram og verður ekki toppaður hvað sem gerist. Ísbjörnn hinn fyrri var skotinn með det samme enda fannst fólki það óforsvaranlegt að hafa ísbjörn á röltinu á meðan menn væru að ráða ráðum sínum varðandi flutning kvikindisins lifandi af landinu. Nei, nei þá spruttu auðvitað upp hellingur sjálfskipaðra ísbjarnarsérfræðinga og rifust og skömmuðust yfir því að hann hefði verið skotinn. Menn töluðu um að læra þyrfti að þessu og setja í gang vinnu við gerð viðbragðsáætlunar og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta mætti bara ekki gerast aftur að ísbjörn yrði drepinn í einhverju panikkasti.

Jæja, tveim vikum seinna dúkkar upp annar ísbjörn. Nú á greinilega að gera allt sem ekki var gert þegar sá fyrri dúkkaði upp. Ísbjörninn fær bara að rölta um í rólegheitunum á meðan málið er skoðað og á miðvikudaginn, ég endurtek: á miðvikudaginn er von á náungum frá Köben til að freista þess að fanga björninn lifandi. Jú, jú öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir og ísbirnir eru í útrýmingarhættu og allt það. En mig bara rámar endilega í að hafa heyrt það í fréttum í fyrra ísbjarnarmálinu að þessi dýr geta tekið upp á því að hlaupa á allt að 60 km hraða.

Pant ekki vera bóndi þarna í sveitinni og mæta ísbirni á 60 km hraða. Íslenskir bændur eru líka í útrýmingarhættu - allavega fer þeim sífækkandi og algjör óþarfi að ísbjörn fækki þeim eitthvað frekar.

En greyið Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra. Hennar verður minnst sem konunnar sem lét drepa ísbjörnin hinn fyrri. Svo skellir hún sér í frí og á meðan birtist annar ísbjörn. Staðgengill hennar Björgvin G. Sigurðsson er í svaka björgunaraðgerðum til að koma í veg fyrir að björninn verði drepinn. Hann verður sem sagt góði gæinn sem reyndi allt til að bjarga ísbirninum. 


Enn eitt ísbjarnarbloggið

Ég er svo sem ekki búin að fylgjast vel með fréttum af þessum blessaða ísbirni sem álpaðist hingað til lands og þar fyrir utan er ég enginn sérfræðingur í málefnum ísbjarna. 

Skil samt ekki hvað annað hefði átt að gera í stöðunni en að skjóta dýrið.

Það getur varla gengið að hafa stórhættulegan ísbjörn ráfandi um í þoku nálægt vegi tímunum saman á meðan fólk er eitthvað að ráða ráðum sínum, funda um hvað eigi að gera við kvikindið, finna deyfilyf og fljúga með það frá öðrum landsfjórðungi og svo framvegis.

Hefði átt að taka slíkan séns og þá kannski eiga það á hættu að missa sjónar af honum í þokunni? 

Auðvitað var slæmt að skjóta kvikndið en samt örugglega skársti kosturinn miðað við aðstæður.


Ár og dagar líða

Hvað verður eiginlega um dagana? Hvert fara þeir eiginlega? Ég get svo svarið það að þessi vika er búin að líða á ógnarhraða og ég varla búin að gera neitt af viti. Var að vísu í fríi á mánudaginn og fór þá í klippingu og strípur og í boð en annars hef ég gert mest lítið fyrir utan vinnuna. Ekki einu sinni lesið neitt af viti fyrir utan dagblöðin en þau teljast nú varla með.

Annars fórum við mamma í Blómaval í dag til að kaupa sumarblóm. Ég hafði aldrei komið í Blómaval eftir að búðin var flutt inn í Skútuvog og bara vá hvað þetta er flott búð. Ótrúlega flottar framstillingar og mjög sölulegar verð ég að segja. Framstillingar eru jú eitt helsta lykilatriðið í verslun. Sérstaklega er þarna deild sem nefnist Soldis og er með gerviblóm eða silkiblóm eða hvað það nú heitir og ég hefði verið til í að fjárfesta í næstum öllu sem þar var. Sá sem stjórnar framstillingunum þar á bæ er greinilega að gera góða hluti í vinnunni sinni.


Jarðskjálfti

Við Tóta sátum í mestu makindum inn á skrifstofu í vinnunni þegar allt byrjaði að hristast hressilega og greinilegt að hér var jarðskjálfti á ferð. Mér fannst drunurnar meiri núna en í Suðurlandsskjálftanum árið 2000 og þetta stóð lengur yfir. Við urðum pínu skelkaðar og þutum fram í búð og sáum að nokkrar ljósakrónur voru á nokkurri hreyfingu en annars var allt með kyrrum kjörum.

Fór svo á netið stuttu seinna til að fá upplýsingar um skjálftann en þá var ekkert komið inn. Greinilegt að fyrstu viðbrögð margra hafa verið að skella sér á netið því stuttu seinna komst maður ekki inn á nokkrar af þessum helstu síðum eins og vedur.is og visir.is vegna álags. Mbl.is klikkaði reyndar ekki þó hún hafi verið frekar lengi að hlaðst inn.

Líklega eru þetta fyrstu stóru náttúruhamfarirnar þar sem netið hefur tekið við af útvarpinu sem helsta upplýsingaveitan. 

 Þegar ég kom heim um fimmleytið sá ég að stofuklukkan hafði stoppað nákvæmlega á sömu mínútu og jarðskjálftinn reið yfir. IMG_0075

Mikið er maður nú þakklátur fyrir að búa á Íslandi þegar svona atburðir eiga sér stað. Vel byggð hús og vel þjálfað almannavarnar og björgunarlið sem sjá til þess að allt fari sem best miðað við aðstæður.

Sömuleiðis algjört lán í óláni að það var einstaklega hlýtt og bjart veður þegar þetta reið yfir því án þess hefðu getað skapast vandræði með að flytja fólk í öruggt skjól fyrst því var bannað að vera innandyra. 

Verð að viðurkenna að ég fann mikið til með litla stráknum í Hveragerði sem rætt var við í fréttum ásamt mömmu sinni. Litla skinnið líklega 5 eða 6 ára hafði lokast inn í anddyrinu heima hjá sér í skjálftanum en mamma hans var fyrir utan húsið og hann komst ekki til hennar alveg strax. Strákurinn var skiljanlega ennþá í losti og lítill í sér en voða krúttlegur greyið í viðtalinu. Vonandi jafnar hann sig fljótt. 


Næsta síða »

Höfundur

Björg K. Sigurðardóttir
Björg K. Sigurðardóttir

 

Netfang: bjorgksig(at)simnet.is

MSN: bjorgksig(at)hotmail.com 

Efni á þessari síðu er ekki ætlað til birtingar annars staðar en á síðunni! 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 37565

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband